Ekkert nýtt hérna

Sjómaður skarst illa á fingri um borð í loðnuskipi djúpt norður af Vestfjörðum í nótt, fjarri allri læknisaðstoð. Félagar hans gripu til eigin ráða, komust í samband við lækni í gegn um vaktstöð siglinga og Gæsluna. Síðan saumuðu þeir skurðinn saman, samkvæmt tilsögn læknisins, þáðu ráðleggingar um lyfjagjöf, og snéru sér svo aftur að veiðunum. Læknir mun svo væntanlega taka saumana úr honum, næst þegar komið verður í land.

 

Svo mörg voru þau orð og þau hafa gert mig og marga aðra agndofa því þetta er daglegt brauð á Íslenskum skipum og hefur verið það frá fyrstu tíð því það eru ekki ráðnir læknar um borð um skip á Íslandi. Einhverjir Læknar hafa jú örugglega farið á sjó en ekki sem læknar, en þeir hafa þá komið sér vel ef slys ber að höndum en venjulega þá verða Íslenskir sjómenn að bjarga sér sem best þeir geta. Íslenskir stýrimenn eru margir hverjir orðnir mjög færir sárasaumarar og kippa sér ekki upp við að þurfa að sauma sár eða spelka saman brot. Þetta er eingin frétt fyrir sjómenn sem eru nær alltaf fjarri læknishjálp en gott samt að minna fólk á aðstæður Íslenskra sjómanna og sjómanna yfirleitt. Ást og friður!


BÖÖÖÖÖÖÖ.............!

Hvað er að gerast í huga þess sem samþykir að prenta þessa frétt athugasemdalaust? Ef börn hegða sér svona þá þarf væntanlega að ath. hvað er að hjá þeim eða foreldrunum. Einhverjar þjáningar eru í gangi og ætti barnaverndar yfirvöld að koma að málinu. Þvílíkt ábyrgðarleysi að fara bara með börnin til "særingarmanns" og vona það besta. Bull og vitleysa. Blaðamenn eða ritstjórar ættu ekki að gleipa við svona vitleysu án þess að rannsaka þá málið og vísa því til réttrar aðila ef þurfa þykir. skemmtanagildi fréttarinnar er ekkert því kaldur hrollur fer um hvern hugsandi mann sem sér les um svona meðferð á börnum. Hverju hafa þessi börn lent í sem kallar á þau viðbrögð sem sagt er frá. Trúarofstæki með GXX má vita hverju í bland en það kemur ýmislegt miður gott upp í hugan! Þola ekki hlý orð: ekkert traust til fullorðinna. þola ekki að talað sé um Jesum krist:Hefur einnhver trúarbrjálaðingur misnotað traust þeirra ? Maður spyr sig og undrast að ritstjóri skuli ekki spyrja sig þegar svona kemur inn á borð til hans. Þarna gæti verið einhver harmleikur í gangi og það er stokkið á það sem skemmtiefni til að selja blöð. Ef blöð eru ásökuð um að fara offorsi þá bera þau við upplýsingafrelsi og skyldur við almenning. Hvar eru skyldur blaðsins í svona tilfellum? Ef þær eru við almanning þá er það þjóðin og hún hefur ekkert að gera með þessi mál heldur á að vísa þeim beint til Barnaverndarnefndar!!  Subbuleg sorpblaðamennska!

Friður og kærleikur.  BT


mbl.is Illur andi hljóp í börnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón eða séra Jón

Það sannast enn og aftur að ef þú átt nóg af peningum og völdum þá ert þú ósnertanlegur og ef svo ótrúlega vill til að peninga og valda menn eru dæmdir, þá er það vegna þess að menn með ennþá meiri peninga og völd vilja losna við þá, annars standa þessir menn utan við lög og rétt og þar er allt réttlætið í heiminum. Þetta sjáum við hér heima þar sem tld. Sérstakur saksóknari er í fjársvelti til að gera honum erfiðara fyrir að rannsaka og sækja mål og hverjir sjá um fjárveitingarnar aðrir en stjórnmálamenn sem eru á spena hjá þeim sömu mönnum og Sérstakur S. Er að eltast við. Subbulegt ekki satt en svona er Ísland ennþá.
mbl.is Hótelþernan farin í felur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÆLL!!

SÆLL!
mbl.is Skylt að sýna kurteisi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glatkistan!

Það hefur alltaf verið svo að sigurvegarar skrifa söguna en afneitun hefur líka sett sinn svip á mannkynssöguna og sögufölsun er sannleikur sem er reynt að fela af stjórnmálamönnum, herjum og oft líka heilum þjóðum. Almenningur veit stundum ekki allan sannleikann vegna yfirhilmingar eða afneitunar því sannleikurinn er oft of skelfilegur til að hægt sé að höndla hann eða líta í augu hans. Þó ekki sé eg að hvetja fólk til að fara aftur og aftur í hryllinginn eins og hundar í ælu, þá finnst mér að svona atburðum og sambærilegum eigi að halda á lofti til að mynna okkur á, hverju stríð, stjórnmál og trúarbrögð geta komið til leiðar ef þeim er leift að vaxa og dafna og verða að öfgum sem aftur leiða ófrávíkjanlega til illverka. Ást, friður og sannleikur. BT
mbl.is Átta ára stungin og skilin eftir í blóði sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn að borða?

Það gleymist oftast að mynnast á fólkið sem var með þeim sem var "grandað" en oftast er það fjöldskildan og þá konur og börn sem lenda á milli í þessum endalausa blóðleik pólítíkusana. En þetta telst víst fórnarkostnaður fyrir "frelsi og lýðræði og rétta trú". Okkur öllum hinum til lífsbóta. Bull!!
mbl.is Felldu Al-Qaeda leiðtoga í Pakistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan lýðurinn sveltur!

Hvað er hægt að segja um svona vitleysu og geggjun. Ótrúlegt að svona skuli enn vera að gerast í henni veröld. Kinverjar hampa þessum litla bróður og veröldin horfir dofin á og engin fordæmir þessi ríki eða slítur sambandi við þau vegna viðskiptahagsmuna. Heimurinn er að kafna undan drsli frá kína sem dettur í sundur við að það sé horft á það og sorg er leid í lög í koreu. Bullið tekur engan enda.
mbl.is Settu snekkju inn í fjölskyldugrafhýsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar sem þörfin er mest eða hvað?

Það er ekki hægt að segja að allir þessir styrkir hafi allir lent til þeirra sem þarfnast þeirra til að geta sinnt listsköpun sinni. Flest er þetta vel stöndugt lið sem er í áskrift af starfs-, listamanna- eða heiðurslaunum enda sami rassinn undir flestum þeim sem ákveða hver er verðugur, en pólitík og sambönd ráða þar mestu í þessu eins og flestu í þessu spillingarbæli sem Ísland er. Ást og friður. BT

Breytingartillaga

við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2013.

Frá allsherjar- og menntamálanefnd (BjörgvS, SkH, GLG, BirgJ, ÞKG).

Heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis, sbr. lög nr. 66/2012 (02-982-1.70).
Þús. kr.
1. Atli Heimir Sveinsson 2.898
2. Ásgerður Búadóttir 2.898
3. Edda Heiðrún Backman 3.622
4. Erró 2.898
5. Guðbergur Bergsson 2.898
6. Guðmunda Elíasdóttir 2.898
7. Gunnar Eyjólfsson 2.898
8. Hannes Pétursson 2.898
9. Herdís Þorvaldsdóttir 2.898
10. Jóhann Hjálmarsson 2.898
11. Jón Nordal 2.898
12. Jón Sigurbjörnsson 2.898
13. Jónas Ingimundarson 3.622
14. Jórunn Viðar 2.898
15. Kristbjörg Kjeld 2.898
16. Kristján Davíðsson 2.898
17. Magnús Pálsson 2.898
18. Matthías Johannessen 2.898
19. Megas 3.622
20. Róbert Arnfinnsson 2.898
21. Sigurður A. Magnússon 2.898
22. Vigdís Grímsdóttir 3.622
23. Vilborg Dagbjartsdóttir 2.898
24. Þorbjörg Höskuldsdóttir 2.898
25. Þorsteinn frá Hamri 2.898
26. Þráinn Bertelsson 3.622
27. Þuríður Pálsdóttir 2.898
Samtals 81.866

Eins og sést þá er þetta ekki hópur fátækra listamanna heldur þéna flestir þeirra milljónir á list sinni og eru margir í fullu starfi með.
En svona er Ísland í dag.


mbl.is Heiðurslaunin stórhækka í kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Augu Líru eftir Evu Joly og Judith Perrignon

Eg var að enda við að klára lestur bókarinnar Augu Líru og skemmti mér konunglega. Hröð og trúverðug frásögn og skemmtilegar persónur þó eg hefði viljað kynnast persónunum betur en það hefði lengt bókina sem hefði ekki komið að sök enda skemmtileg og fær mann til að hugsa um, bæði hvað spillinginn er útbreidd og oft vel falin og hrokafull en einnig hvað valdið og lífið er hverfullt og að stundum getur lítill steinn velt stóru hlassi. Góð lesning. Takk Eva og Judith. BT

Virðingarleysi!

Fyrir þeim er þetta bara djók enda er ekki verið,að taka nógu hart á þessum mönnum og stjórnmálaflokkarnir dansa með og lála menn sem eru rammflæktir í spillinguna leiða sig og sjá ekkert athugunarvert við það. Subbulegt. Svo sitja þeir og hlæja og grea grín á meðan þeir bíða eftir að bera vitni enda engin virðing fyrir alvarleika málsins. En þetta er ekkert nýtt þegar kemur að sjálfstæðismönnum.
mbl.is Minnið brást Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband