Færsluflokkur: Bloggar

Spilling karlaveldisins!

Þetta er ekkert nýtt í veröldinni og ekki langt siðan við Íslendingar vorum á sama stað í lögum og réttarkerfinu og enn eigum við langt í land til að geta talist siðmenntuð. Það eru ekki mörg ár síðan sami maðurinn ransakaði, ákærði, dæmdi og setti framkvæmd dómsins í gang svo við Íslendingar getum ekki sagt mikið en maður fyllist samt sorg að lesa svona greinar. Mannvonskunni eru engin takmörk sett og alltof margir snúa blinda auganu að þegar harmleikir gerast og auka þannig á harmleikinn. Sorg og depurð!
mbl.is Nauðgað og misþyrmt af hópi karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki leita að sökudólgum?

Það passar alltaf vel hjá stjórnmálamönnum að segja, ekki leita að sökudólgum en hræsnin er að drepa Jóhönnu og þetta lið sem reyndi að troða upp á okkur ónýtum og illa gerðum samningum og sögðu að þetta væri það eina sem hægt væri að gera. En svo á að eigna ser heiðurinn núna. Ótrúlega hræsnisfull kona hún Jóhanna. Sorglegt
mbl.is Eigum ekki að leita sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsökun og afsögn.

Þjóðin þurfti ekki bara að etja kapp við tvær öflugustu stofnanir heims eins og Súrmundur segir heldur þurftum við að berjast við okkar eigin Alþingi og nær alla aðila þess. Það þarf að reka alla þessa menn sem eru í vinnu hjá OKKUR,!! Bjarni Ben er líka að berja sér á brjóst og reynir að eigna ser heurinn en það er þjóðin og þjóðin ein sem á heiðurinn af þessum málalokum og með hjálp frá Forsetanum okkar sem sá hvað var vilji þjóðarinnar og brást við því öfugt við nær alla aðra sem komu að stjórn landsins og alþingis. En þeir munu reyna eina sögufölsunina enn en vonandi mun fólk ekki falla fyrir því þó eg efist um að allir séu þeim gáfum gæddir að sjá í gegn um svona lélega umritun sögunnar. Vöknum og vinnum!
mbl.is „Ætlið þið að biðjast afsökunar?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegt ??

Þetta var svo alvarlegt að þeir voru nær 6. Ár að skila af sér skýrslunni og svo telja þeir þetta alvarlegt mál. Þetta er eins og hvert annað grín.
mbl.is Flugvélin fór sjálf á loft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins 300.000- ??

300.000 hef eg heyrt að séu bæturnar sem þykja boðlegar fyrir þetta ótrúlega brot á persónuvernd og trúnaði. Bull upphæð finnst mér en eg veit að Páli er .upphæðin ekki aðalmálið heldur að standa upp og lta vita að þetta verður ekki liðið og sem fordæmi er Páll í fyrsta sæti. Ekki lúffa fyrir kerfinu þó það reyni að gera þér erfitt fyrir en það er þeirra leið til að verja sig og sína. Flottur Páll.
mbl.is Læknafélagið greiði miskabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

110% leiðin!

Er það einhver leið út úr vandanum að halda fólki í gíslingu með aðeins minni skuldir en samt 10% hærri en verðmæti eigna. Bull og fyrirsláttir. Lusnir hafa ekki verið neinar en vel er passað upp á ríkissjóð sem getur nú bara seatið við sama borð og aðrir í ríkinu eða hvað?
mbl.is Framsókn sendi björgunarteymi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörkutól

Hún er hörkutól þessi stelpa og ætlar að klára þetta hvað sem tautar og raular, þetta er ofurmannleg raun sem við venjulegt fólk getum ekki sett okkur inn í en virðingin sem hún fær frá mér á sér engin takmörk. Afrekskona klárlega ! Hugsa til hennar og sendi henni alla krafta sem eg má án vera. Kkv BT
mbl.is Vilborg þjáist af magakveisu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afreksmenn

Bardaga íþróttir hafa ekki átt upp á pallborðið hjá ÍSÍ og þeir bardagamenn Íslenskir eins og Gunnar og Árni , sem hafa verið að gera hluti sem að öllu eðlilegu ættu að hafa fengið afreks verðlaun , hafa ekki fengið þá viðurkenningu sem þeir eiga skilið. Gunnar er tvímælalaust Íþróttamaður ársins og skömm að ekki skuli vera búið að heiðra hann fyrir sitt framlag.
mbl.is Íslendingar tilnefndir í fimm flokkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrímslin undir rúminu!

Það ætlar engan endir að taka ÞÖGGUNAR ástríða Íslendinga og mannskepnunnar yfirhöfuð. Blinda augað er endalaust snúið að öllu sem er óþægilegt og líka af þeim sem eru í vinnu hja okkur hinum við að halda augunum opnum og passa upp á þjóðfélagið. Óhugnalegt að sjá þetta í Kastljósimog þetta á eflaust eftir að versna annað kvöld. Kannski vekur þetta fólk upp til að hrópa nógu hátt svo einhver viðbrögð verða til batnaðar í þessum sorapolli okkar hér á Íslandi. Ást og kærleikur
mbl.is Játaði tugi kynferðisbrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sakarafskriftir eftir Guðmund Andra Thorsson


Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur.
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi fréttamaður, skrifaði grein í Fréttablaðið um daginn þar sem hún segir frá kynnum sínum af Evu Joly og viðrar í framhaldi af því þá skoðun að grundvallarmunur sé á þeim málum sem sérstakur saksóknari rannsakar hér á landi og þeim málum sem Eva rannsakaði í Frakklandi. Þar voru glæpamenn og mafíósar að verki. Og hér? Tja, eiginlega allir („embættismenn, stjórnmálamenn, blaðamenn, eftirlitsmenn, lífeyrissjóðir, litlir fjárfestar og stórir fjárfestar").

Fúsk annarra

Kristín lætur á sér skilja að það fólk sem hér hafi verið valið til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara, nánast af handahófi, hafi upp til hópa verið vel menntuð en afvegaleidd ungmenni sem hafi gripið til örþrifaráða við að bjarga verðmætum í ástandi sem skapaðist af „fúski" einhverra ótilgreindra „annarra". Kristín minnir á múgæsinguna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum á sínum tíma þegar fjölmiðlar heimtuðu mannblót og fólkið fékk sín afvegaleiddu ungmenni, með hjálp sérfræðings frá Evrópu, og hún nefnir í sömu andrá Evu Joly og hinn þýska Karl Schütz.

Skoðanir Kristínar eru á skjön við ríkjandi hugmyndir um ástæður hrunsins og nauðsynlegar aðgerðir til að framfylgja lögum og rétti og skapa einhvers konar hugmynd um sæmd í íslensku viðskiptalífi þar sem orðheldni, ráðdeildarsemi og skilvísi þykja dyggðir fremur en sviksemi, óráðsía og klækiskapur. Það vitnar um hugrekki hjá Kristínu. Það er eitt einkenni á heilbrigðu samfélagi að hægt sé að viðra umdeild sjónarmið án þess að eiga á hættu að fá yfir sig gusur af því tagi sem „virkir í athugasemdum" senda frá sér í þartilgerðum orðabúllum þegar vænsta fólk umhverfist skyndilega eins og virkir alkóhólistar í bullandi neyslu, nema hér nær hömluleysið til orðbragðs; það er nefnilega hægt að vera ofæta á orð líka og stunda orðasukk jafnt sem annað sukk.

Það er mikilvægt að við tökumst á um ólík sjónarmið. En þar með er ekki endilega sagt að sérstakur saksóknari eigi bara að hætta þessu og veita sakarafskriftir á línuna, eins og skilningsríkur skilanefndarfursti.

Fráleitur samanburður

Kristín veitir sök á línuna; leitast við að gera sökina svo almenna að hún þurrkast eiginlega út. Vorum við ekki öll með í þessu? Reyndar ekki. En vert að muna að hér var um árabil hægri stjórn sem trúði á undanbragðalausan óskeikulleika markaðarins. Þegar við búum til óðakapítalisma fáum við yfir okkur óða kapítalista. Og eins og Pálmi í Fons sagði í viðtali í DV: „Við vorum eins og sjómenn í Smugunni"

En þeir fyrrum eigendur banka og stórfyrirtækja sem til rannsóknar eru nú voru hvað sem því líður ekki afvegaleidd ungmenni af því tagi sem Kristín Þorsteinsdóttir rifjar upp, með óbragð í munni. Sævar Ciesielski fékk aldrei neitt afskrifað á sinni erfiðu ævi heldur allt margfaldlega í hausinn aftur. Tryggvi Rúnar Leifsson kom engum fjármunum undan til aflandseyja og lifði ekki í vellystingum praktuglega meðan hann beið rannsóknar heldur mátti dúsa í eilífu gæsluvarðhaldi. Erla Bolladóttir gat ekki tafið mál árum saman með fulltingi færustu lögmanna með milljón á tímann – barn var tekið af henni. Þetta voru smælingjar sem voru látnir bera syndir samfélagsins á sínum mjóu herðum og það er óboðlegt að tala í sömu andrá um þungbært hlutskipti þeirra og svo aftur rannsóknir sérstaks saksóknara á fjárdrætti hástéttarmanna og misnotkun á eignarhaldi á heilu bönkunum. Þessir krakkar voru sakaðir um glæp sem aldrei sást framinn, lík fundust ekki, morðvopn, tengsl við þá horfnu, ástæða; ekkert. Landsbankinn og Glitnir, Kaupþing, Milestone, Gift, Sjóvá, Bakkavör, Fons, Samskip, Baugur, World Class, Pelsinn, FL-Group ? allt eru þetta raunveruleg fyrirtæki þar sem raunverulegir gerningar áttu sér stað – og gervifyrirtækin voru meira að segja líka til.

Málin sem til rannsóknar eru hjá sérstökum saksóknara kunna að vera vakin af „oflæti" íslensku þjóðarinnar en þau snúast ekki um það heldur meint lögbrot. Málin snúast ekki um blóðþorsta almennings eða fjölmiðla, væntanlegt „fúsk" sérstaks saksóknara eða skapferli dómara (dómari í Vafningsmáli var kallaður „hinn grimmi" í fréttatíma Stöðvar tvö á dögunum, eftir að fallið hafði afar mildur dómur þar) – heldur um þetta: meint lögbrot. Því fyrr sem hægt er að ljúka þeim málum sem til rannsóknar eru þeim mun hraðar er hægt að hreinsa andrúmsloftið í samfélaginu. Það verður ekki hreinsað með gleymsku eða sakarafskriftum. Mannorð verður ekki endurheimt með afskriftum.

Meint lögbrot tiltekinna aðila: Menn eru til rannsóknar fyrir stórfelld fjársvik. Við sögu koma upphæðir sem enginn skilur og fjármálagerningar sem virðist þurfa sérfræðinga í skammtafræði til að rýna í. Þessir menn starfa margir enn í viðskiptalífinu eins og ekkert hafi í skorist með nýja kennitölu, hafa á sínum snærum dýrustu málþófsmenn landsins við að þæfa málin enn í þeirri von að þau gleymist, gufi upp, lognist út af í þófinu. Við lesum um afskriftir sem ná til tunglsins og aftur til baka. Slíkar eru upphæðirnar og slíkar voru aðfarirnar í allri þessari miklu fjármálaleikjafræði sem til rannsóknar er – slík var hugkvæmnin – að um það bil síðasta orðið sem hægt er að nota um það er orðið „fúsk". Slíkur var skaðinn fyrir íslensk heimili, íslenskt orðspor, íslenskt þjóðarbú, íslenska sjálfsmynd, að sú tilhugsun er nánast óbærileg að komið verði í veg fyrir eðlilegan framgang réttvísinnar með málþófi og sakarafskriftum.

Eg villdi bara deila þessari grein með ykkur. Flott grein.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.